1 Chronicles 11:23 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hann drap og egypskan mann tröllaukinn, fimm álna háan. Egyptinn hafði spjót í hendi, digurt sem vefjarrif, en hann fór á móti honum með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hann felldi einnig risavaxinn Egypta sem var fimm álnir á hæð. Egyptinn hafði spjót í hendi, digurt sem vefjarrif. En Benaja réðst á hann með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti.