1 Chronicles 21:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Guð sendi engil til Jerúsalem til þess að eyða hana, og er hann var að eyða hana, leit Drottinn til og hann iðraði hins illa, og sagði við engilinn, er eyddi fólkinu: “Nóg er að gjört! Drag nú að þér höndina!” En engill Drottins var þá hjá þreskivelli Ornans Jebúsíta.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Guð sendi engil til Jerúsalem til þess að eyða borgina. En þegar hann var í þann veginn að eyða hana sá Drottinn það og iðraðist þessa böls og sagði við engilinn sem eyddi fólkinu: „Nú er nóg komið. Dragðu að þér höndina.“ Engill Drottins stóð þá við þreskivöll Jebúsítans Ornans.