1 Chronicles 21:17 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Davíð sagði við Guð: “Var það eigi ég, er bauð að telja fólkið? Það er ég, sem hefi syndgað og breytt mjög illa, en þetta er hjörð mín, - hvað hefir hún gjört? Drottinn, Guð minn, lát hönd þína leggjast á mig og ættmenn mína, en eigi á lýð þinn til þess að valda mannhruni.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Davíð sagði við Guð: „Er það ekki ég sem hef gefið skipun um að þjóðin skuli talin? Það er ég sem hef syndgað, það er ég sem hef brotið af mér. En hvað hefur þessi hjörð hérna gert? Drottinn, Guð minn. Lyftu hendi þinni gegn mér og fjölskyldu minni en greiddu þjóð þinni ekki högg.“