1 Kings 1:51 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Var Salómon sagt frá því með svofelldum orðum: “Sjá, Adónía er hræddur við Salómon konung, heldur um altarishornin og segir: ‘Salómon konungur sverji mér í dag, að hann skuli ekki láta taka þjón sinn af lífi.’”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Salómon bárust þessi boð: „Adónía óttast Salómon konung. Hann hefur gripið um horn altarisins og sagt: Salómon konungur sverji mér nú í dag, að hann láti ekki taka þjón sinn af lífi með sverði.