1 Kings 12:24 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Svo segir Drottinn: Farið eigi og berjist eigi við bræður yðar Ísraelsmenn. Fari hver heim til sín, því að að minni tilhlutun er þetta orðið.” Og er þeir heyrðu orð Drottins, hurfu þeir aftur, eins og Drottinn bauð.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Svo segir Drottinn: Farið ekki til að berjast við bræður ykkar, Ísraelsmenn. Hver ykkar skal halda til síns heima því að ég er valdur að því sem gerst hefur.“ Þeir hlýddu boðskap Drottins, sneru við og fóru heim eins og Drottinn hafði sagt.