1 Kings 14:21 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Rehabeam sonur Salómons varð konungur í Júda. Rehabeam hafði einn um fertugt, þá er hann varð konungur, og seytján ár ríkti hann í Jerúsalem, borginni, sem Drottinn hafði útvalið af öllum ættkvíslum Ísraels til þess að láta nafn sitt búa þar. Móðir hans hét Naama og var ammónítísk.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Rehabeam, sonur Salómons, varð konungur í Júda þegar hann var fjörutíu og eins árs að aldri. Hann ríkti sautján ár í Jerúsalem, borginni sem Drottinn hafði valið úr öllum ættbálkum Ísraels til þess að láta nafn sitt búa þar. Móðir hans hét Naama og var frá Ammón.