1 Kings 2:19 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá gekk Batseba á fund Salómons konungs til þess að tala máli Adónía við hann. Konungur stóð upp á móti henni, laut henni og settist síðan í hásæti sitt og lét setja fram stól handa konungsmóður. Settist hún til hægri handar konungi.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Batseba fór nú til Salómons konungs til þess að flytja honum erindi Adónía. Konungur stóð upp, gekk til móts við hana og laut henni. Síðan settist hann í hásæti sitt og lét færa fram hásæti handa konungsmóðurinni og settist hún honum til hægri handar.