1 Kings 2:42 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sendi konungur boð og lét kalla Símeí og sagði við hann: “Hefi ég ekki sært þig við Drottin og lagt ríkt á við þig og sagt: ‘Það skaltu vita fyrir víst, að á þeim degi, sem þú gengur að heiman og fer eitthvað burt, skaltu deyja.’ Og þú sagðir við mig: ‘Ég hefi heyrt það og læt mér vel líka.’
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Konungur lét þá kalla Símeí fyrir sig og sagði við hann: „Hef ég ekki látið þig sverja við nafn Drottins? Ég varaði þig við og sagði: Þú skalt vita það fyrir víst að þú deyrð um leið og þú ferð héðan. Þú svaraðir mér: Látum svo vera. Ég hef heyrt boð þitt.