1 Kings 20:34 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Benhadad sagði við hann: “Borgunum, sem faðir minn tók frá föður þínum, skal ég skila aftur, og þú mátt gjöra þér torg í Damaskus, eins og faðir minn gjörði í Samaríu.” “Hvað mig snertir,” mælti Akab, “þá vil ég láta þig lausan með þessum skilmálum.” Og hann gjörði við hann sáttmála og lét hann í brott fara.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Benhadad sagði við hann: „Ég skal skila aftur borgunum sem faðir minn tók af föður þínum og þú mátt koma þér upp verslunargötum í Damaskus eins og faðir minn gerði í Samaríu.“ Ísraelskonungur sagði: „Með þessum skilyrðum gef ég þér frelsi.“ Hann gerði síðan samning við Benhadad og lét hann lausan.