1 Kings 22:8 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ísraelskonungur mælti til Jósafats: “Enn er einn eftir, er vér gætum látið ganga til frétta við Drottin, en mér er lítið um hann gefið, því að hann spáir mér aldrei góðu, heldur illu einu. Hann heitir Míka Jimlason.” Jósafat sagði: “Eigi skyldi konungur svo mæla.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ísraelskonungur svaraði: „Jú, enn er einn eftir. Hjá honum getum við leitað úrskurðar Drottins. En ég hata hann því að hann spáir mér aldrei góðu heldur illu einu. Hann heitir Míka Jimlason.“ Jósafat sagði þá: „Þetta ætti konungur ekki að segja.“