1 Kings 7:14 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hann var sonur ekkju nokkurrar af ættkvísl Naftalí, en faðir hans var ættaður frá Týrus og var koparsmiður. Var hann fullur hagleiks, skilnings og kunnáttu til að gjöra alls konar smíðar af eiri. Hann kom til Salómons konungs og smíðaði allar smíðar fyrir hann.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hann var sonur ekkju af ættbálki Naftalí en faðir hans var frá Týrus og hafði verið eirsmiður. Híram var hagleiksmaður og gæddur skilningi og kunnáttu til þess að vinna að hvers konar eirsmíði. Hann kom til Salómons konungs og sá um alla smíðavinnuna fyrir hann.