1 Kings 8:64 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þann dag vígði konungur miðhluta forgarðsins, sem er fyrir framan hús Drottins, því að þar fórnaði hann brennifórninni og matfórninni og hinum feitu stykkjum heillafórnanna, því að eiraltarið, sem stóð frammi fyrir Drottni, var of lítið til þess að geta tekið brennifórnina, matfórnina og hin feitu stykki heillafórnanna.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þennan sama dag helgaði konungurinn miðhluta forgarðsins sem er fyrir framan musteri Drottins. Hann fórnaði þar brennifórn, kornfórn og feiti heillafórnarinnar því að eiraltarið, sem stóð frammi fyrir augliti Drottins, var of lítið til að rúma brennifórnina, kornfórnina og feiti heillafórnarinnar.