1 Kings 9:3 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Drottinn sagði við hann: “Ég hefi heyrt bæn þína og grátbeiðni, sem þú barst fram fyrir mig. Ég hefi helgað þetta hús, sem þú hefir reist, með því að ég læt nafn mitt búa þar að eilífu, og augu mín og hjarta skulu dvelja þar alla daga.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Drottinn sagði við hann: „Ég hef heyrt ákall þitt og bæn sem þú fluttir fyrir augliti mínu. Ég hef helgað þetta hús sem þú hefur reist til þess að nafn mitt búi þar ævinlega. Augu mín og hjarta munu ætíð vera þar.