1 Samuel 10:5 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Eftir það munt þú koma til Gíbeu Guðs, þar sem súla Filista stendur. Og þegar þú kemur inn í borgina, þá munt þú mæta hóp spámanna, sem eru á leið ofan af fórnarhæðinni með hörpur, bumbur, hljóðpípur og gígjur á undan sér og sjálfir eru í spámannlegum guðmóði.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því næst kemurðu til Gíbeu Guðs þar sem landstjóri Filistea býr. Þegar þú kemur inn í borgina muntu mæta hópi spámanna sem eru að koma niður af fórnarhæðinni. Fyrir þeim fara hljóðfæraleikarar sem leika á hörpu, trumbu, flautu og sítar en spámennirnir eru í guðmóði.