1 Samuel 12:3 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hér er ég, vitnið á móti mér frammi fyrir Drottni og hans smurða: Hvers uxa hefi ég tekið? Og hvers asna hefi ég tekið? Og hvern hefi ég féflett? Hverjum hefi ég sýnt ofríki? Og af hverjum hefi ég þegið mútu eða jafnvel eina skó? Vitnið móti mér, og mun ég gjalda yður það aftur.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Nú stend ég hér. Svarið mér frammi fyrir Drottni og hans smurða. Hef ég tekið naut frá einhverjum? Hef ég tekið asna frá einhverjum? Hef ég féflett einhvern? Hef ég beitt einhvern ofríki? Hef ég þegið lausnargjald fyrir morð af einhverjum og lokað augunum fyrir sekt hans? Hafi ég gert eitthvað af þessu vil ég nú bæta fyrir það.“