1 Samuel 14:24 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
og Ísraelsmenn voru mæddir orðnir þann dag. Þá gjörði Sál mikið glappaverk. Hann lét liðið vinna svolátandi eið: “Bölvaður sé sá, sem neytir matar áður en kveld er komið og ég hefi hefnt mín á óvinum mínum!” Fyrir því bragðaði enginn af liðinu mat.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
og áttu Ísraelsmenn í vök að verjast þann dag. Þess vegna lét Sál liðið sverja eið sama dag. Hann sagði: „Bölvaður sé hver sá maður sem neytir einhvers áður en kvöldar og áður en ég hef hefnt mín á fjandmönnum mínum.“ Og enginn hermannanna neytti neins.