1 Samuel 14:34 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Sál mælti: “Gangið út meðal fólksins og segið þeim: ‘Hver og einn af yður komi til mín með sinn uxa og sína sauðkind og slátrið þeim hér og etið, svo að þér syndgið ekki á móti Drottni með því að eta það með blóðinu.’” Þá kom hver og einn af liðinu um nóttina með það, er hann hafði, og þeir slátruðu því þar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Síðan gaf Sál þessi fyrirmæli: „Farið út meðal fólksins og segið: Hver og einn skal koma hingað með naut sín og lömb. Slátrið þeim hér og etið svo að þið syndgið ekki gegn Drottni með því að neyta kjöts með blóðinu í.“ Um nóttina kom allt liðið með það búfé sem það hafði og slátraði því þar.