1 Samuel 14:41 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá mælti Sál: “Drottinn, Ísraels Guð, hví svaraðir þú ekki þjóni þínum í dag? Ef þessi misgjörð hvílir á mér eða Jónatan syni mínum, Drottinn, Ísraels Guð, þá lát þú úrím koma upp, en ef hún hvílir á lýð þínum Ísrael, þá lát þú túmmím koma upp.” Þá kom upp hlutur Jónatans og Sáls, en fólkið gekk undan.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði Sál við Drottin, Guð Ísraels: „Veittu okkur fullvissu.“ Kom þá upp hlutur Jónatans og Sáls en fólkið gekk leiðar sinnar.