1 Samuel 15:20 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá mælti Sál við Samúel: “Ég hefi hlýtt boði Drottins og hefi farið í leiðangur þann, er Drottinn sendi mig í, og hefi komið hingað með Agag, Amaleks konung, og Amalek hefi ég banni helgað.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Sál svaraði Samúel: „Ég hlýddi boði Drottins og fór þangað sem hann sendi mig. Ég tók Agag, konung Amalekíta, með mér og helgaði Amalek banni.