1 Samuel 17:23 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En meðan hann var að tala við þá, sjá, þá gekk fram hólmgöngumaðurinn - hann hét Golíat, Filisti frá Gat - úr fylkingum Filistanna og mælti sömu orðum sem fyrr, og Davíð hlýddi á.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Á meðan hann var að tala við þá gekk hólmgöngumaðurinn Golíat frá Gat út úr fylkingum Filistea. Hann endurtók það sem hann var vanur að segja og Davíð heyrði það.