1 Samuel 18:17 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Sál sagði við Davíð: “Sjá, ég vil gefa þér Merab, eldri dóttur mína, fyrir konu. En þú verður að reynast mér hraustur maður og þú verður að heyja bardaga Drottins!” En Sál hugsaði með sér: “Ég skal ekki leggja hönd á hann, en Filistar skulu leggja hönd á hann.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Einhverju sinni sagði Sál við Davíð: „Hér er Merab, elsta dóttir mín. Ég skal gefa þér hana að konu ef þú reynist mér hraustur maður og berst í bardögum Drottins.“ En Sál hugsaði með sér: „Ég skal ekki leggja hendur á hann heldur skulu Filistear verða til þess.“