1 Samuel 22:17 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og konungur mælti til varðmannanna, sem hjá honum stóðu: “Komið hingað og deyðið presta Drottins, því að einnig þeir hafa hjálpað Davíð. Og þótt þeir vissu, að hann var að flýja, þá létu þeir mig ekki vita það.” En þjónar konungs vildu ekki leggja hendur á presta Drottins.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því næst sagði konungurinn við lífverðina sem stóðu umhverfis hann: „Umkringið presta Drottins og drepið þá því að þeir hafa hjálpað Davíð. Þeir vissu að hann var á flótta en sögðu ekki til hans.“ En menn konungs vildu ekki lyfta hendi til að höggva presta Drottins.