1 Samuel 24:12 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En líttu á, faðir, já líttu á lafið af skikkju þinni í hendi mér. Af því, að ég sneið lafið af skikkju þinni og drap þig ekki - af því mátt þú skynja og skilja, að ég bý eigi yfir illsku og svikum og að ég hefi eigi syndgað á móti þér. En þú situr um að ráða mig af dögum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Sjáðu, faðir minn, líttu á. Ég held á bút af skikkju þinni í hendi mér. Af því að ég skar bút af skikkju þinni en drap þig ekki getur þú séð og skilið að ég hef hvorki uppreisn í huga né neitt illt og að ég hef ekki gerst brotlegur gegn þér. Það ert þú sem sækist eftir lífi mínu.