1 Samuel 25:39 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þegar Davíð frétti, að Nabal væri dáinn, mælti hann: “Lofaður sé Drottinn, sem hefnt hefir svívirðu minnar á Nabal og haldið hefir þjóni sínum frá illu. En illsku Nabals hefir Drottinn látið honum sjálfum í koll koma.” Sendi þá Davíð menn til Abígail þess erindis, að hann vill fá hennar sér til eiginkonu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar Davíð frétti að Nabal væri dáinn sagði hann: „Lofaður sé Drottinn sem hefur rekið réttar míns og veitt mér uppreisn æru. Hann hefur forðað þjóni sínum frá því að vinna ódæði en látið illsku Nabals koma honum í koll.“ Síðan sendi Davíð boð til Abígail um að hann ætlaði að taka hana sér fyrir eiginkonu.