1 Samuel 28:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sagði Samúel við Sál: “Hví hefir þú ónáðað mig og látið kalla mig fram?” Sál mælti: “Ég er í miklum nauðum staddur. Filistar herja á mig, og Guð er frá mér vikinn og svarar mér ekki lengur, hvorki fyrir milligöngu spámannanna né í draumum. Fyrir því lét ég kalla þig, til þess að þú segir mér, hvað ég á að gjöra.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði Samúel við Sál: „Hvers vegna hefurðu raskað ró minni og látið vekja mig upp?“ Sál svaraði: „Ég á nú í miklum þrengingum. Filistear ráðast á mig og Guð hefur yfirgefið mig. Hann svarar mér ekki lengur, hvorki fyrir munn spámanna né í draumum. Þess vegna hef ég kallað þig fram til þess að þú segir mér hvað ég á að gera.“