1 Samuel 28:20 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá varð Sál hræddur og féll endilangur til jarðar, og hann skelfdist mjög af orðum Samúels. Hann var og magnþrota, því að hann hafði eigi matar neytt allan daginn og alla nóttina.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Sál féll jafnskjótt endilangur til jarðar því að hann varð skelfingu lostinn við orð Samúels. Auk þess var hann máttvana því að hann hafði ekki neytt matar í heilan sólarhring.