1 Samuel 29:3 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sögðu höfðingjar Filista: “Hvað eiga þessir Hebrear hér að gjöra?” Akís sagði við höfðingja Filista: “Það er Davíð, hirðmaður Sáls konungs í Ísrael, sem nú hefir með mér verið í tvö ár, og hefi ég ekki haft neitt út á hann að setja frá þeirri stundu, er hann gjörðist minn maður, og allt fram á þennan dag.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá spurðu höfðingjar Filistea: „Hvað eru þessir Hebrear að gera hér?“ Akís svaraði höfðingjum Filistea: „Þetta er auðvitað Davíð sem var í þjónustu Sáls Ísraelskonungs. Hann hefur verið með mér árum saman og ég hef ekki haft út á neitt að setja í fari hans frá því að hann flýði til mín og þar til nú.“