1 Samuel 29:6 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá lét Akís kalla Davíð og sagði við hann: “Svo sannarlega sem Drottinn lifir ert þú ráðvandur, og ég uni því vel, að þú gangir út og inn með mér í herbúðunum, því að ég hefi ekki orðið neins ills var hjá þér frá þeirri stundu, er þú komst til mín, og allt fram á þennan dag, en höfðingjunum er ekki um þig.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá kallaði Akís Davíð fyrir sig og sagði við hann: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir þá ert þú heiðarlegur maður. Ég vil gjarnan halda til orrustu með þér og snúa síðan heim með þér því að ég hef hingað til ekki haft neitt út á þig að setja frá því að þú komst til mín. En höfðingjunum fellur ekki við þig.