1 Samuel 30:21 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En er Davíð kom til þeirra tvö hundruð manna, er gefist höfðu upp, svo að þeir máttu ekki fylgja honum, og fyrir því verið skildir eftir við Besórlæk, þá fóru þeir í móti Davíð og liðinu, sem með honum var. Og er Davíð kom með liðið, þá heilsuðu þeir þeim.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar Davíð kom aftur til þeirra tvö hundruð manna, sem höfðu verið of máttfarnir til að fylgja honum og voru skildir eftir við Besórlæk, gengu þeir á móti Davíð og flokknum sem með honum var. Þegar Davíð og menn hans voru komnir til þeirra heilsaði hann þeim.