1 Samuel 4:18 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En er hann nefndi Guðs örk, þá féll Elí aftur á bak úr stólnum við hliðið og hálsbrotnaði, og varð það hans bani, því að hann var gamall maður og þungur. En hann hafði verið dómari í Ísrael í fjörutíu ár.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Um leið og hann nefndi örk Guðs féll Elí aftur fyrir sig af stól sínum við borgarhliðið og hálsbrotnaði. Lét hann þar lífið því að hann var orðinn gamall og þungur. Hann hafði verið dómari í Ísrael í fjörutíu ár.