1 Samuel 4:3 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og er lýðurinn kom aftur í herbúðirnar, þá sögðu öldungar Ísraels: “Hví hefir Drottinn látið oss bíða ósigur í dag fyrir Filistum? Vér skulum sækja sáttmálsörk Drottins til Síló, og þegar hún er komin hér meðal vor, mun hún frelsa oss af hendi óvina vorra.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar herinn kom aftur til búðanna spurðu öldungar Ísraels: „Hvers vegna lét Drottinn okkur bíða ósigur fyrir Filisteum í dag? Við skulum sækja sáttmálsörk Drottins til Síló svo að hann verði mitt á meðal okkar og bjargi okkur úr greipum fjandmanna okkar.“