1 Samuel 5:11 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá gjörðu þeir út sendimenn og söfnuðu saman öllum höfðingjum Filista og sögðu: “Sendið burt örk Ísraels Guðs, svo að hún komist á sinn stað og deyði mig ekki og fólk mitt.” Því að dauðans angist hafði gripið alla borgina. Hönd Guðs lá þar mjög þungt á.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sendu þeir menn, sem stefndu saman öllum höfðingjum Filistea, og sögðu: „Losið ykkur við örk Ísraels Guðs. Sendið hana aftur þangað sem hún á heima svo að hún drepi okkur ekki og þjóðina alla.“ Allir borgarbúar voru felmtri slegnir því að hönd Guðs lagðist mjög þungt á þá.