1 Samuel 6:14 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og vagninn kom inn á akur Jósúa í Bet Semes og nam þar staðar. En þar var stór steinn. Og þeir klufu viðinn úr vagninum og fórnuðu kúnum í brennifórn Drottni til handa.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar vagninn kom inn á land Jósúa frá Bet Semes nam hann staðar við stóran stein. Klauf þá fólkið viðinn, sem vagninn var úr, og færði Drottni kýrnar að brennifórn.