2 Chronicles 12:9 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Síðan fór Sísak Egyptalandskonungur herför móti Jerúsalem og tók fjársjóðu húss Drottins og fjársjóðu konungshallarinnar, tók það allt saman. Hann tók og gullskjölduna, er Salómon hafði gjöra látið.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Sísak, konungur Egypta, hélt því næst gegn Jerúsalem. Hann rændi fjársjóðum úr húsi Drottins og höll konungs. Hann lét greipar sópa og rændi einnig öllum gullskjöldunum sem Salómon hafði látið gera.