2 Chronicles 18:31 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og er foringjarnir fyrir vagnliðinu sáu Jósafat, sögðu þeir: “Þetta er Ísraelskonungurinn!” og umkringdu hann til að berjast við hann. Þá kallaði Jósafat hátt, og Drottinn hjálpaði honum og Guð ginnti þá burt frá honum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar vagnstjórarnir sáu Jósafat hugsuðu þeir með sér: „Þetta er vafalaust konungur Ísraels.“ Þeir umkringdu hann því þegar og réðust á hann. Þegar Jósafat hrópaði á hjálp kom Drottinn honum til hjálpar og Guð tældi þá frá honum.