2 Chronicles 19:10 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og í hverri þrætu, er kemur fyrir yður frá bræðrum yðar, þeim er búa í borgum sínum, hvort sem það er vígsök eða um lögmál eða boðorð eða lög eða ákvæði, þá skuluð þér vara þá við, svo að þeir verði ekki sekir við Drottin, og reiði komi yfir yður og bræður yðar. Svo skuluð þér breyta, að þér verðið ekki sekir.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar bræður ykkar, sem búa í heimabæjum sínum, skjóta til ykkar deilu skuluð þið vara þá við svo að þeir verði ekki sekir fyrir Drottni og reiði hans komi yfir ykkur og bræður ykkar. Þetta á við, hvort sem um er að ræða mun á blóðsektum eða mun á leiðsögn og fyrirmælum eða lögum og reglum. Framfylgið þessu svo að þið verðið ekki sekir.