2 Chronicles 20:25 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En Jósafat kom með mönnum sínum til þess að taka af þeim herfang. Fundu þeir afar mikið af fénaði og munum og klæðum og dýrum áhöldum og rændu handa sér svo miklu, að þeir gátu eigi borið. Og þeir voru þrjá daga að taka af þeim herfang, því að mikið var af því.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því næst kom Jósafat ásamt her sínum til þess að taka herfangið. Þeir fundu mikinn fénað, vörur, klæðnaði og dýrgripi. Þeir tóku svo mikið að þeir gátu ekki borið það. Herfangið var svo mikið að þeir voru þrjá daga að safna því.