2 Chronicles 20:37 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá spáði Elíesar Dódavahúson frá Maresa gegn Jósafat og mælti: “Sakir þess að þú gjörðir samband við Ahasía, ónýtir Drottinn fyrirtæki þitt.” Og skipin brotnuðu og gátu eigi farið til Tarsis.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En Elíeser, sonur Dódava frá Maresa, kom fram sem spámaður gegn Jósafat og sagði: „Drottinn mun brjóta það sem þú hefur látið smíða af því að þú hefur gert bandalag við Ahasía.“ Skipin brotnuðu í spón og komust aldrei til Tarsis.