2 Chronicles 22:9 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Síðan lét hann leita Ahasía, og var hann handtekinn, en hann hafði falið sig í Samaríu. Var hann færður Jehú og drepinn. En síðan jörðuðu menn hann, því að þeir sögðu: “Hann er afkomandi Jósafats, þess er leitaði Drottins af öllu hjarta sínu.” En enginn var sá af ætt Ahasía, er fær væri um að taka við konungdómi.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því næst lét hann leita að Ahasía. Hann var gripinn í Samaríu, þar sem hann hafði falið sig, og færður fyrir Jehú sem drap hann. Hann var grafinn af því að menn sögðu: „Hann var sonur Jósafats sem leitaði Drottins af öllu hjarta.“ Nú var enginn eftir af ætt Ahasía sem var fær um að taka við konungdómi.