2 Chronicles 24:12 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og konungur og Jójada fengu það verkstjórunum, er stóðu fyrir vinnunni við musteri Drottins, en þeir leigðu steinhöggvara og trésmiði til þess að reisa við musteri Drottins, svo og járnsmiði og eirsmiði til þess að gjöra við musteri Drottins.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Konungurinn og Jójada afhentu það síðan verkstjórunum sem störfuðu í húsi Drottins. Þeir réðu steinsmiði og trésmiði til að endurnýja hús Drottins og einnig meistara í járnsmíði og eirsteypu til að bæta hús Drottins.