2 Chronicles 24:14 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og er þeir höfðu lokið því, færðu þeir konungi og Jójada afganginn af fénu, og voru af því gjörð áhöld fyrir hús Drottins - áhöld til guðsþjónustu og fórnfæringa, skálar og gull- og silfuráhöld. Brennifórnir voru færðar í musteri Drottins alla ævi Jójada.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar þeir höfðu lokið verkinu komu þeir með það sem eftir var af fénu til konungs og Jójada. Fyrir það létu þeir gera áhöld fyrir hús Drottins, skálar til guðsþjónustunnar og brennifórnarþjónustunnar, skálar og önnur áhöld úr gulli og silfri. Á meðan Jójada lifði voru brennifórnir færðar reglulega í húsi Drottins.