2 Chronicles 25:5 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Amasía stefndi Júdamönnum saman og skipaði þeim niður eftir ættum, eftir þúsundhöfðingjum og hundraðshöfðingjum úr öllum Júda og Benjamín. Síðan kannaði hann þá, tvítuga og þaðan af eldri, og komst að raun um, að þeir voru þrjú hundruð þúsund einvalaliðs, herfærir menn, er borið gátu spjót og skjöld.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Amasía stefndi nú Júdamönnum saman. Hann fylkti öllum Júdamönnum og Benjamínítum eftir ættkvíslum undir stjórn foringja þúsund manna liða og hundrað manna liða. Því næst kannaði hann liðið, alla sem voru tuttugu ára og eldri, og reyndust þeir vera þrjú hundruð þúsund talsins, einvalalið, búið til herþjónustu, vopnað spjótum og skjöldum.