2 Chronicles 26:15 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá lét hann og gjöra í Jerúsalem vélar með miklum hagleik. Skyldu þær vera í turnunum og hornunum til að skjóta með örvum og stórum steinum. Og frægð hans barst til fjarlægra landa, því að honum hlotnaðist dásamlegt liðsinni, uns hann var voldugur orðinn.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hann lét gera þrauthugsaðar vígvélar í Jerúsalem. Var þeim komið fyrir uppi á turnunum og á hornum múrsins. Með þeim mátti skjóta örvum og varpa stórum steinum. Frægð hans barst til fjarlægra landa af því að honum var hjálpað til valda með undursamlegum hætti.