2 Chronicles 26:18 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þeir stóðu í móti Ússía konungi og sögðu við hann: “Það er eigi þitt, Ússía, að brenna reykelsi fyrir Drottni, heldur prestanna, niðja Arons, er vígðir eru til þess að færa reykelsisfórnir. Far þú út úr helgidóminum, því að þú ert brotlegur orðinn, og verður þér það eigi til sæmdar fyrir Drottni Guði.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir tóku sér stöðu gegnt Ússía konungi og sögðu við hann: „Þér er ekki ætlað, Ússía, að brenna reykelsi fyrir Drottni heldur prestunum, niðjum Arons. Þeir eru vígðir til þess. Farðu út úr helgidóminum því að þú hefur brotið af þér. Þetta verður þér ekki til sæmdar fyrir Drottni Guði.“