2 Chronicles 28:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Gengu þá til menn þeir, er til þess voru kvaddir með nafni, og önnuðust fangana. Klæddu þeir af herfanginu alla þá, er naktir voru meðal þeirra, gáfu þeim klæði og skó og að eta og drekka og smurðu þá, settu alla þá á asna, er uppgefnir voru, og fluttu þá til Jeríkó, pálmaborgarinnar, til frænda þeirra, og sneru síðan heim aftur til Samaríu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Síðan gengu þeir menn fram sem höfðu verið valdir til þess með nafnakalli og tóku fangana að sér. Þeir klæddu þá sem voru naktir, gáfu þeim klæði og skó af herfanginu, gáfu þeim að eta og drekka og smurðu þá smyrslum. Því næst fluttu þeir alla, sem ekki gátu gengið, á ösnum til Jeríkó, pálmaborgarinnar, til ættbræðra þeirra og sneru síðan aftur heim til Samaríu.