2 Chronicles 29:34 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En prestarnir voru of fáir, svo að þeir gátu ekki flegið öll brennifórnardýrin. Hjálpuðu þá frændur þeirra, levítarnir, þeim, uns starfinu var lokið og prestarnir helguðu sig, því að levítarnir höfðu einlægari áhuga á því að helga sig en prestarnir.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En prestarnir voru of fáir svo að þeir gátu ekki flegið öll dýrin sem ætluð voru til brennifórnar. Þess vegna hjálpuðu Levítarnir, embættisbræður þeirra, þeim við að ljúka verkinu þar til fleiri prestar höfðu helgað sig því að Levítarnir voru enn samviskusamari við helgunina en prestarnir.