2 Chronicles 30:6 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá fóru hraðboðarnir með bréf frá konungi og höfuðsmönnum hans um allan Ísrael og Júda, og mæltu svo eftir boði konungs: “Þér Ísraelsmenn! Snúið aftur til Drottins, Guðs Abrahams, Ísaks og Ísraels, til þess að hann snúi sér að leifunum, er komist hafa undan af yður úr hendi Assýríukonungs.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Nú fóru hraðboðar með bréf frá konungi og hirðmönnum hans um allan Ísrael og Júda og tilkynntu að boði konungs: „Ísraelsmenn, snúið ykkur til Drottins, Guðs Abrahams, Ísaks og Ísraels, svo að hann snúi sér að þeim ykkar sem sluppu úr höndum Assýríukonunga.