2 Chronicles 31:1 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þegar öllu þessu var lokið, fóru allir Ísraelsmenn, er þar voru viðstaddir, til Júda-borga, brutu sundur merkissteinana, hjuggu sundur asérurnar og rifu niður fórnarhæðirnar og ölturun í öllum Júda, Benjamín, Efraím og Manasse, uns þeim var gjöreytt. Fóru síðan allir Ísraelsmenn aftur til borga sinna, hver til síns óðals.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar öllu þessu var lokið fóru allir þeir Ísraelsmenn, sem höfðu verið viðstaddir, út í borgir Júda. Þeir brutu sundur merkisteinana, hjuggu niður Asérustólpana og rifu niður fórnarhæðirnar og ölturun alls staðar í Júda, Benjamín, Efraím og Manasse. Því næst héldu allir Ísraelsmenn heim til borga sinna, hver um sig til eignar sinnar.