2 Chronicles 34:31 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og konungur gekk á sinn stað og gjörði þann sáttmála frammi fyrir Drottni, að fylgja Drottni og varðveita skipanir hans, fyrirmæli og lög af öllu hjarta sínu og allri sálu sinni, til þess að breyta þannig eftir orðum sáttmálans, þeim er rituð voru í þessari bók.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Konungurinn tók sér stöðu á sínum stað og gerði sáttmála við Drottin um að fylgja Drottni, hlýða boðum hans, fyrirmælum og lagaákvæðum af öllu hjarta og allri sálu og um að framfylgja ákvæðum sáttmálans sem skráð voru í þessari bók.