2 Chronicles 34:4 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ölturu Baalanna voru rifin niður að honum ásjáandi, og sólsúlurnar, er á þeim voru, hjó hann sundur, og asérurnar og skurðgoðin og líkneskin braut hann sundur og muldi þau, og stráði duftinu á grafir þeirra, er höfðu fært þeim fórnir.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ölturu Baalanna voru rifin niður að honum ásjáandi og hann lét mölbrjóta reykelsisölturun sem stóðu á þeim. Hann lét einnig brjóta Asérustólpana, skurðgoðin og líkneskin mélinu smærra og því næst dreifa þeim á grafir þeirra sem höfðu fært þeim fórnir.